Yin Yang, the balanced dualism of life.
 

Ólöf Einarsdóttir
Nálastungufélag Íslands, BSc, Lic.Ac., M.BAcC

 

NálastungurHvenær gagnast þær?Meðferðin

 

Hvenær gagnast þær?

Það er útbreiddur misskilningur að nálastungur gagnist einungis við sársauka eða reykinga- og eiturlyfjafíkn. Nálastungur hafa frá fornu fari verið notaðar við krónískum heilsufarsvandamálum sem
og í bráðatilfellum. Þær hafa jafnframt verið notaðar sem fyrir- byggjandi aðferð til að viðhalda jafnvægi, andlegu sem líkamlegu.

Vegna eiginleika nálastungna til að örva græðandi mátt líkamans geta þær haft jákvæð áhrif á flesta sjúkdóma og eða aukaverkanir sem þeir hafa í för með sér. Einnig virka þær vel jafnhliða hefð- bundinni læknismeðferð t.d. eftir erfið veikindi eða lyfjameðferð til að byggja upp og styrkja einstaklinginn.

Samkvæmt Alþjóða heilbrigðisstofnunni (WHO) eru nálastungur gagnlegar við eftirfarandi:


EYRNA-, NEF- OG HÁLSSJÚKDÓMUM
Astma, kvefi, flensu, háum hita, eyrnasuði, eyrnabólgum, ennis- og kinnholuvandamálum, skerðingu á lyktarskyni.

HJARTA- OG ÆÐASJÚKDÓMUM
Háum/lágum blóðþrýstingi, bjúgmyndun, köldum útlimum.

HÚÐVANDAMÁLUM
Bólum, exemi, psoriasis, örmyndun.

Kyn-og þvagfÆRAVANDAMÁLUM
þvagfærasýkingum, blöðruhálskirtilvandamálum, tíðahringsvandamálum, ófrjósemi.

MELTINGARFÆRATRUFLUNUM

Háum magasýrum, ógleði, magabólgum, magasári, ristilkrampa, harðlífi, niðurgangi, bakflæði.

sÁLRÆNUM ÞÁTTUM
Kvíðaköstum, þunglyndi, svefnleysi, streitu, sleni.

tAUGAKERFISVANDAMÁLUM
Flogaveiki, höfuðverk, mígreni og spennuhöfuðverk, skálfta, svima, trigeminal neuralgia (vangahvot), ristli.

VÖÐVA- OG BEINAVANDAMÁLUM
Gigt (allar tegundir), tennisolnboga, bakverkjum, axla- og hnakkavandamálum, íþróttameiðslum, sinaskeiðabólgu,
hné-og ökklavandamálum.

ÖNDUNARFÆRASJÚKDÓMUM
Astma, bronkítis, lungaþembu.

ÖÐRU
Frjókornaofnæmi, ofnæmi, ofvirkni, reykinga- og eiturlyfjafíkn, ofvirkum/vanvirkum skjaldkirtli, síþreytu, verkjum, dofa, ýmiskonar sýkingum og bólgum.


   


Tímapantanir í síma 699-8410

Skólavörðustígur 16, 3ja hæð, 101 Reykjavík

   
   
   

   
Click yin yang to go heim.