![]() |
Ólöf Einarsdóttir
|
|
Meðferðin Fyrsta meðferð tekur 1 klukkustund og endurkoma 45 - 60 mínútur. Tíðni meðferða fer eftir ástandi sjúklingsins. Yfirleitt er miðað við meðferð á 2ja - 4ra vikna fresti eða sjaldnar. Í fyrsta viðtali er leitast við að skilgreina og finna út eðli þess sem veldur tilteknu ójafnvægi (sjúkdómi). Reynt er að öðlast nákvæman skilning á öllum sjúkdómseinkennum, lífsstíl, mataræði og öllu því helsta er viðkemur núverandi heilsufari. Tungan er skoðuð, litið er á lag hennar, lit og form. Púls er tekinn á úlnliði þar sem leitast er við að skilgreina 28 einkenni eins og takt, styrk og breidd, sem segja til um hvað er að gerast í líkamanum. Yfirleitt eru aðeins notaðar 1 - 5 nálar í meðferð. Nálarnar eru sótthreinsaðar og einnota. Við meðferð á börnum undir 7 ára aldri eru ýmist notaðar nálar eða orkupunktar nuddaðir. |
||
Skólavörðustígur 16, 3ja hæð, 101 Reykjavík |
||