![]() |
Ólöf Einarsdóttir
|
|
Hvað eru nálastungur? Nálastungur eru ævafornt lækningakerfi sem þróast hefur í þúsundir ára í Kína, Kóreu, Japan og fleiri Austurlöndum. Grunnhugmyndin að baki hefðbundnum nálastungum er í meginatriðum sú að heilbrigði sé undir því komið að jafnvægi sé á chi sem er sú orka sem nálastungur hafa áhrif á. Chi flæðir í ýmsu formi um allan líkamann en þó einkum í orkurásum sem liggja rétt undir húðinni. Markmiðið með nálastungum er að koma á jafnvægi milli andstæðra eiginleika, nefnilega yin og yang. Ýmislegt raskar þessu jafnvægi. Nútíma lífstíll, rangt mataræði, bakteríu- og veirusýkingar sem og tilfinning aleg atriði svo sem kvíði, reiði, hræðsla, sorg og ýmis sálræn áföll hindra flæði á chi þannig að misræmi getur myndast. Þetta misræmi getur síðan þróast í veikindi sé ekkert að gert. |
||
Skólavörðustígur 16, 3ja hæð, 101 Reykjavík |
||