![]() |
Ólöf Einarsdóttir
|
|
Viðtal í Fréttablaðinu, 18. maí, 2005 PDF Nálarstungur gagnast við astma, mígreni og vefjagigt Nálarstungur eru í mikilli sókn hérlendis og gagnast við hvers kyns kvillum. "Vegna áhrifa nálarstungna til að auka græðandi mátt líkamans gagnast nálarstungur við mörgum sjúkdómstilfellum og eru ekki síður góðar samhliða hefðbundinni læknismeðferð, svo sem fyrir fólk sem er í mikilli lyfjameðferð eða að jafna sig eftir veikindi,“ segir Ólöf Einarsdóttir nálarstungufræðingur. Hún lauk fjögurra ára námi frá The International College of Oriental Medicine og útskrifaðist með BSc-gráðu frá Brighton University í nálarstungufræðum. Aðspurð segir Ólöf að nálarstungur séu í sókn hérlendis sem annars staðar og að hún fái til sín breiðan hóp fólks með ýmis heilsufarsvandamál. "Ef ég á að nefna eitthvað sérstakt hef ég séð góðan árangur hjá fólki sem komið hefur vegna vefjagigtar, mígrenis og astma. Annars gagnast nálarstungur við svo mörgu og ég er einmitt nýkomin frá New York þar sem ég var að kynna mér nálarstungur sem lið í áfengis- og eiturlyfjameðferð. Einnig heimsótti ég St. Vincent spítalann sem er staðsettur þar sem Tvíburaturnarnir voru. Eftir 11. september 2001 hefur verið boðið upp á ókeypis nálarstungumeðferð fyrir starfsfólk spítalans, slökkviliðsmenn og aðra. Þar er boðið upp á nálarstungur og var fullt út úr dyrum þegar ég kom þarna að, en inni var verið að meðhöndla yfir 30 manns.“ Ólöf er starfandi í Bolholti 4 og í Heilsubrúnni, en þar starfa saman faglærðir einstaklingar á þverfaglegum grunni, með hefðbundnar og óhefðbundnar meðferðir. Þar er auk nálastungna boðið upp á sálfræðimeðferð, stuðning vegna áfalla og langvarandi streitu og sjúkdóma, handleiðslu, höfuðbeina- og spjald-hryggjarmeðferð, samtalsmeðferð og uppeldis- og talmeinameðferð. Sjá allt viðtalið á PDF |
||
Skólavörðustígur 16, 3ja hæð, 101 Reykjavík |
||